Persónuverndarstefna
Mér er umhugað um persónuvernd, deili ekki upplýsingum um mína viðskiptavini og birti ekki ljósmyndir frá viðskiptavinum á heimasíðu né samfélagsmiðlum
nema með samþykki viðskiptavina
Persónuverndarstefna Fagurlist slf
Anna Kristín Ljósmyndun
Persónuverndarstefna
Anna Kristín Ljósmyndun – Fagurlist slf (kt. 490522-1820)
Síðast uppfært: 1.maí 2025
1. Um stefnuna
Þessi persónuverndarstefna lýsir hvernig Anna Kristín Ljósmyndun safnar, geymir og vinnur með persónuupplýsingar í tengslum við ljósmyndun og aðra þjónustu. Stefnt er að því að tryggja öryggi og trúnað viðskiptavina í samræmi við persónuverndarlög og reglugerðir.
2. Hvaða upplýsingar eru unnar?
Við vinnum meðal annars með eftirfarandi persónuupplýsingar:
- Nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang viðskiptavina
- Ljósmyndir sem teknar eru í tengslum við bókun
- Upplýsingar sem tengjast samskiptum og greiðslum
3. Tilgangur og lagagrundvöllur vinnslu
Persónuupplýsingar eru unnar með eftirfarandi tilgangi:
- Til að veita ljósmyndatengda þjónustu og afhenda ljósmyndir
- Til að geyma ljósmyndir í gagnagrunni fyrirtækisins, t.d. fyrir endurpantanir eða afhendingu á seinni stigum
- Til að senda upplýsingar tengdar þjónustu eða bókunum
Vinnslan byggist á:
- Samningi við viðskiptavin
- Lögmætum hagsmunum rekstrar (t.d. varðveisla ljósmynda)
- Samþykki (t.d. ef ljósmyndir eru birtar opinberlega)
4. Geymsla gagna
Ljósmyndir og tengdar upplýsingar eru geymdar í öruggum gagnagrunni á vegum Fagurlist slf. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er í samræmi við tilgang vinnslunnar eða þar til óskað er sérstaklega eftir eyðingu. Afrit ljósmyndar í takmörkuðum gæðum er notað í vefverslun félagsins. Aðgangur takmarkast við einstaklinga úr sömu myndatöku/hóp. Afrit í vefverslun er einungis aðgengilegt í takmarkaðan tíma meðan viðskiptavinum gefst færi á skoða og kaupa ljósmyndir.
5. Þriðju aðilar
Persónuupplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema:
- Með skýru samþykki
- Þegar lög krefjast þess
- Ef notast er við örugga þjónustuaðila (t.d. skýjaþjónustu fyrir myndageymslu) sem uppfylla kröfur um öryggi og trúnað
6. Réttindi viðskiptavina
Þú átt rétt á að:
- Fá upplýsingar um hvaða gögn eru unnin
- Fá aðgang að eigin gögnum
- Krefjast leiðréttingar eða eyðingar
- Draga samþykki til baka hvenær sem er
7. Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar eða óskir varðandi persónuvernd:
Anna Kristín Ljósmyndun – Fagurlist slf
Netfang: annakscheving@gmail.com
Sími: 772-9200
Heimasíða: www.aksljosmyndun.com