Skilmálar
Skilmálar fyrir pöntun og kaup á vörum og þjónustu á aksljosmyndun.com
Skilmálar Fagurlist slf
Anna Kristín Ljósmyndun
Skilmálar Anna Kristín Ljósmyndun – Fagurlist slf (kt. 490522-1820)
Síðast uppfært: 18. nóvember 2026
1. Almennt
Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum og þjónustu á aksljosmyndun.com. Seljandi er Fagurlist slf., kt. 490522-1820, Stórikriki 1, 270 Mosfellsbær. Netfang: aksljosmyndun@gmail.com, sími: 772 9200. Kaupandi telst sá sem gerir pöntun á vefnum. Með því að ganga frá pöntun samþykkir kaupandi skilmála þessa.
2. Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara, en verð pöntunar er það verð sem birtist þegar pöntun var gerð.
3. Pöntun og greiðsla
Pantað er í vefverslun og greitt með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd. Kaupandi fær staðfestingu á pöntun í tölvupósti. Við pöntun á skólamyndum skráir kaupandi númer myndar ásamt skóla og bekk eða deild. Kaupandi ber ábyrgð á að þær upplýsingar séu réttar. Ef mistök verða í pöntun skal hafa samband sem fyrst, áður en myndir eru unnar og prentaðar.
4. Afhending
Skólamyndir: Útprentaðar myndir eru afhentar í viðkomandi skóla, að jafnaði um tveimur vikum eftir að pöntun berst.
Rafrænar myndir: Rafrænar myndir eru sendar á netfang kaupanda þegar þær eru tilbúnar, að jafnaði innan tveggja vikna.
Gjafabréf: Gjafabréf eru sérprentuð og afhent í umslagi samkvæmt nánara samkomulagi við kaupanda.
5. Myndatökur
Við bókun myndatöku greiðist 6.000 kr. staðfestingargjald. Það gengur upp í verð myndatökunnar en er ekki endurgreitt. Tími telst ekki bókaður fyrr en staðfestingargjald hefur verið greitt. Í lok myndatöku fær viðskiptavinur greiðsluseðil í heimabanka. Óunnar myndir eða allar myndir úr myndatöku eru ekki afhentar.
6. Gjafabréf
Gjafabréf gilda í tvö ár frá útgáfudegi og ganga upp í hvaða myndatöku sem er. Gjafabréfum er ekki hægt að skipta fyrir peninga.
7. Skilaréttur og endurgreiðsla
Samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur kaupandi almennt 14 daga til að falla frá samningi. Undantekning á við um vörur sem eru framleiddar eftir forskrift kaupanda eða eru sérsniðnar að þörfum hans. Því gildir skilaréttur ekki um útprentaðar myndir eða rafrænar myndir af kaupanda og fjölskyldu hans. Ónotuð gjafabréf má afpanta innan 14 daga frá kaupum og fæst þá full endurgreiðsla. Ef vara er gölluð, t.d. vegna prentgalla, fær kaupandi nýja prentun sér að kostnaðarlausu eða endurgreiðslu. Endurgreiðslur fara inn á sama greiðslukort og greitt var með.
8. Höfundarréttur
Ljósmyndari á höfundar- og birtingarrétt á öllum myndum nema um annað sé samið. Keyptar myndir eru til einkanota. Öll prentun fer fram í gegnum Anna Kristín ljósmyndun og óheimilt er að prenta myndirnar annars staðar.
9. Persónuvernd
Farið er með persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu Anna Kristín ljósmyndun, sem finna má á vefnum.
10. Lög og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Kaupandi getur leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa ef ágreiningur rís. Rísi mál vegna skilmálanna skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.